Gamla konan í skóginum
No se ha podido añadir a la cesta
Error al eliminar la lista de deseos.
Se ha producido un error al añadirlo a la biblioteca
Se ha producido un error al seguir el podcast
Error al dejar de seguir el podcast
Escúchalo ahora gratis con tu suscripción a Audible
Compra ahora por 0,99 €
No se ha seleccionado ningún método de pago predeterminado.
We are sorry. We are not allowed to sell this product with the selected payment method
-
Narrado por:
-
Árni Beinteinn Árnason
Acerca de este título
Fátæk þjónustustúlka er á ferð um skóginn með húsbóndum sínum þegar ræningjar ráðast á þau. Þjónustustúlkan kemst undan en villist í þykkum skóginum. Kemur þá aðvífandi hvít dúfa sem færir henni lítinn gylltan lykil. Lykillin gengur að stóru tré þar sem stúlkan getur borðað allt sem hana langar í. Dúfan færir henni nýjan lykil að öðru tré og stúlkan nýtur þeirra lystisemda sem þar er að finna. Dag einn biður dúfan stúlkuna um að gera sér greiða. Hún biður stúlkuna um að finna hring hjá gamalli konu í skóginum. Stúlkan vill hún ólm endurgjalda gjafmildi dúfunnar og heldur af stað út í skóg. Gamla konan er þó ekki öll þar sem hún sýnist og stúlkan þarf að beita kænsku og sýna hugrekki til að takast ætlunarverk sitt.
Ævintýri Grimmsbræðra eru löngu orðin þekkt um allan heim enda verið þýdd á fleiri hundruð tungumál. Þjóðsögur Grimmsbræðra hafa tekið töluverðum breytingum í aldanna rás án þess þó að missa upprunalegan boðskap sinn og í dag ganga þjóðsögur Jacobs og Wilhelms einfaldlega undir nafninu Ævintýri Grimmsbræðra.
Bræðurnir Jacob og Wilhelm fæddust í Þýskalandi. Þeir voru málvísindamenn og sömdu þjóðsögur til að efla og styrkja þjóðsagnalist heimalandsins. Bræðurnir nutu töluverðrar hylli fyrir þjóðsögur sínar á 19. öld þótt margar þeirra hafi þótt verulega óhugnalegar. Meðal annarra þekktra ævintýra Grimmsbræðra eru Mjalllhvít, Rauðhetta og Öskubuska.
©2022 SAGA Egmont (P)2022 SAGA Egmont